+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Námsleiðir

Námsleiðum í framhaldsskóla er skipt í nokkra meginflokka eftir skyldleika náms og/eða starfsgreinum:



  • Almennt nám – opin öllum nemendum sem ekki hafa gert upp hug sinn varðandi áframhaldandi nám í framhaldsskóla og nemendum sem lokið hafa grunnskólaprófi en uppfylla ekki skilyrði til inngöngu á lengri námsbrautir.

  • Stúdentsnám. Brautirnar eru: alþjóðleg námsbraut, félagsfræðabraut, málabraut, náttúrufræðibraut og viðskipta- og hagfræðibraut. Einnig er mögulegt að ljúka stúdentsprófi með viðbótarnámi af öðrum brautum t.d. starfsnámsbrautum og listnámsbrautum.

  • Listnám.  Námið tekur þrjú ár og býr nemendur undir áframhaldandi nám og störf á sviði lista. Brautirnar eru: hönnun, listdans, margmiðlunarhönnun, myndlist og tónlist.

  • Starfsbrautir (nám fyrir fatlaða) eru ætlaðar nemendum sem hafa notið verulegrar sérkennslu í grunnskóla og ekki hafa forsendur til þess að stunda nám á öðrum námsbrautum.

  • Starfsnám. Þetta er lang stærsti flokkur námsbrauta í framhaldsskólum. Nám á starfsnámsbraut veitir undirbúning til tiltekinna starfa og/eða áframhaldandi náms. Margar starfsnámsbrautir leiða til ákveðinna starfsréttinda.




Nánari upplýsingar er að finna á vef menntamálaráðuneytisins, www.menntamalaraduneyti.is

Í öllum framhaldsskólum landsins er nú unnið að nýjum skólanámskrám. Skólarnir hafa í samræmi við ný lög heimildir skv. þeim til þess að búa til eigin námsbrautir sem menntamálaráðuneytið þarf að staðfesta. Fái einhver skóli heimild til þess að bjóða upp á nýja námsbraut í tilraunaskyni komandi haust verður það auglýst sérstaklega.



Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir