+ Sarpur x @ 

Framhaldsskólanám

Forsíða

Spurningar og svör

Innritun

Nám er vinnandi vegur

Ákvæði og undanþágur

Námsstyrkir

Námskrár

Námsleiðir

Almennt nám

Listnám

Nám fyrir fatlaða

Starfsnám

Stúdentsnám

isenruesplvnthsrlt

Námsstyrkir

Nemendur á framhaldsskólastigi hér á landi sem ekki njóta lána hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) eiga rétt á námsstyrkjum til jöfnunar á námskostnaði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Almennt skilyrði fyrir styrkveitingu er að nemandi sæki skóla fjarri lögheimili sínu og nánustu fjölskyldu, þ.e. foreldra/forráðamanna. Í boði eru eftirfarandi styrkir:

Dvalarstyrkur - fyrir þá sem verða að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms.


Styrkur vegna skólaaksturs - fyrir þá sem sækja nám í skóla sem er fjarri lögheimili og fjölskyldu.

Umsóknarfrestur um styrki er til 15. október. Frestur hjá þeim sem eingöngu sækja um vorönn/sumarönn er til 15. febrúar. Heimilt er að veita umsókn viðtöku í mánuð eftir auglýstan umsóknarfrest en þá skerðist styrkurinn um 1% fyrir hvern dag að fresti liðnum. Réttur til að sækja um styrk fellur niður að fjórum mánuðum liðnum frá umsóknarfresti.


LÍN tekur við umsóknum um námsstyrki og sér um úrvinnslu þeirra. Á vef LÍN eru umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar.
Slóðin er: http://www.lin.is/jofnunarstyrkur/um_jofnunarstyrk.html

Lánasjóður íslenskra námsmanna er til húsa í Borgartúni 21, 105 Reykjavík, sími: 560 4000, netfang: lin@lin.is



Bookmark and Share
Menntamálaráðuneytið - Sölvhólsgötu 4 - 150 Reykjavík
Sími: 545 9500 - Bréfasími: 562 3068 - Kt.: 460269-2969 - Netfang: - Fyrirspurnir