Löggilt iðngrein. Markmið námsins er að nemendur öðlist skilning, þekkingu og færni til sinna allri smíðavinnu í bygginga- og mannvirkjagerð hvort sem um er að ræða verkstæðis- og innréttingavinnu, úti- eða innivinnu á byggingastað eða viðgerða- og breytingavinnu. Meðalnámstími, að meðtöldu grunnnámi bygginga- og mannvirkjagreina, er fimm annir í skóla og 72 vikna starfsþjálfun. Náminu lýkur með sveinsprófi.