-
Námsbraut: Agronomija
Námslína: Skrúðgarðyrkja
Markmiðið með náminu er að veita fræðslu um undirstöðuatriði í byggingu garða og grænna svæða og viðhaldi þeirra. Kennd er grasafræði, plöntuþekking, jarðrækt og landmælingar. Í skrúðgarðyrkju er og fjallað um nýframkvæmdir, s.s. hellulagnir, hleðslur, tröppugerð, sáningar og plöntun í gróðurbeð sem og umhirðu grænna svæða. Nemendur fá innsýn í rekstur skrúðgarðyrkjufyrirtækja og félagskerfi garðyrkjunnar er kynnt. Garðyrkjufræðingar af skrúðgarðyrkjubraut öðlast rétt til að gangast undir sveinspróf í faginu að loknu bók- og verknámi.
Vinna við nýframkvæmdir og viðhald grænna svæða er starfsvettvangur garðyrkjufræðinga af skrúðgarðyrkjubraut.
Skrúðgarðyrkjufræðingar starfa hjá skrúðgarðyrkjumeisturum, bæjar- og sveitarfélögum, fyrirtækjum og stofnunum. Þeir vinna einnig sem sjálfstætt starfandi skrúðgarðyrkjumeistarar (að loknu meistaranámi) og sem garðyrkjustjórar hjá bæjar- og sveitarfélögum, fyrirtækjum og stofnunum. Námið nýtist vel sem undirbúningur að háskólanámi í umhverfisskipulagi og landslagsarkitektúr.
Skólar sem bjóða upp á þetta nám: