Vélstjórnarnám er stigskipt og veitir atvinnuréttindi til starfa að fullnægðum skilyrðum um siglingatíma og starfsþjálfun sem mælt er fyrir um í lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa og annarra skipa.
Nám af vélstjórnarbraut A veitir að loknum siglingatíma og starfsþjálfun réttindi til starfa á skipum með vélarafl minna en 750 kW. Meðalnámstími er 2 annir í skóla.
Nám af vélstjórnarbraut B veitir að loknum siglingatíma og starfsþjálfun réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með vélarafl 1500 kW og minna og undirvélstjóra á skipum með 3000 kW vélarafl og minna. Meðalnámstími er 6 annir í skóla.
Nám af vélstjórnarbraut C veitir að loknum siglingatíma og starfsþjálfun réttindi til að gegna stöðu yfirvélstjóra og 1. vélstjóra á skipum með vélarafl minna en 3000 kW. Meðalnámstími er 9 annir í skóla.
Nám af vélstjórnarbraut D veitir að loknum siglingatíma og starfsþjálfun ótakmörkuð vélstjórnarréttindi. Meðalnámstími er 10 annir í skóla.